Banda­rískur her­­maður í „Ís­­lendinga­búning“ hæddist að landi og þjóð árið 1970 - Sjáðu myndina

Mikið hefur verið fjallað um menningar­nám eftir að Ís­lenska óperan setti upp sýninguna Madame Butter­fly en leikarar og leik­stjóri voru sakaðir um „yellowface“ með því að láta ís­lenska leikara leika Japana.

Arn­grímur Borg­þórs­son minnir land á þjóð og þegar Banda­rískur her­maður á­kvað að gera slíkt hið sama á hrekkja­vöku­balli á her­stöðinni í Kefla­vík árið 1970.

„Bara smá menningar­­nám sem engan særir, ekki satt? Maðurinn til vinstri er banda­rískur her­­maður í ís­­lendinga­búningi á hrekkja­vöku­balli á vellinum ca 1970. Hann reyndi að klæða sig eins hall­æris­­lega og hann gat og er með vasa fulla af tún­­fiski til að lykta eins og ís­lendingur,“ skrifar Arn­grímur sem birtir myndina.

„Okei þetta er náttúr­­lega bæði spot on og ó­­­geðs­­lega fyndið, en ég sé fyrir mér boo­merana SPRINGA úr móðgun,“ skrifar Þórunn Jakobs við færslu Arn­gríms en Boo­mers eru svo­kallaði Baby Boo­mers sem eru fæddir á árunum 1946 -1964.

„Ég get alveg séð hvernig þetta gæti sært fólk á þessum tíma. Her­manninum til varnar, þá er amk hægt að segja að hann hafi komið til ís­lands og hitt landann. Það sama er ekki hægt að segja um Puccini og Japan,“ skrifar Arn­grímur.