Bandarískir áhorfendur ráku upp stór augu þegar þeir sáu hver var í salnum

Bandaríkjamenn eru steinhissa á því að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hafi mætt á leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt án þess að vera með öryggisgæslu allt í kringum sig. Þá eru þeir hissa á að Guðni hafi ekki setið í betri sætum en raun bar vitni.

Fréttablaðið vekur athygli á því að Guðni hafi verið mættur á leik Milwaukee Bucks og Boston Celtics í nótt ásamt strákunum sínum. Heimamenn í Milwaukee Bucks unnu nauman sex stiga sigur, 131 á móti 125 stigum Boston.

Nokkir netverjar á Twitter vöktu athygli á málinu.

„Forseti Íslands er hér að horfa á Celtics á móti Bucks og það er ekki nein öryggisgæsla í kringum hann. Kannski er hún en hún er ekki áberandi. Furðulegt," segir Beewol Akandwanaho.

„Hann situr ekki einu sinni við völlinn," sagði annar.

Guðni er þekktur fyrir hógværð sína og hefur sú staðreynd vakið athygli að hann gefur hluta af launum sínum til góðgerðarmála. Þá mætti hann á leiki Íslands á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 skömmu eftir að hann var kjörinn forseti. Þá var hann eins og hver annar Íslendingur í stúkunni og hvatti sitt lið áfram í bláu treyjunni innan um íslenska stuðningsmenn.