Líkur eru á að Bandaríkjamenn muni fyrstir þjóða fá bóluefni gegn COVID-19 sem franska lyfjafyrirtækið Sanofi vinnur nú að þróun að. Ef allt gengur að óskum og bóluefnið reynist öruggt til notkunar munu Bandaríkjamenn fyrstir njóta góðs af því.
Í frétt Bloomberg kemur fram að Bandaríkjamenn hafi lagt 30 milljónir Bandaríkjadala, 4,4 milljarða króna, í rannsóknasjóð fyrirtækisins um þróun bóluefnis gegn COVID-19. Þetta hafi þeir gert fyrstir þjóða og segir Paul Hudson, stjórnarformaður fyrirtækisins, að í ljósi þess hafi Bandaríkjamenn rétt á fyrstu skömmtunum af efninu.
COVID-19 faraldurinn hefur dregið tæplega 300 þúsund manns til dauða í heiminum og eru margir sem bíða óþreyjufullir eftir bóluefni. Ljóst er að samkeppnin verður mikil ef og þegar fyrstu bóluefnin koma á markað.
Sanofi og breska lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline hafa tekið höndum saman um þróun bóluefnis og er vonast til þess, ef allt gengur að óskum, að fyrstu skammtarnir geti komið á markað á næsta ári.
Bandaríkjamenn lögðu sem fyrr segir fyrstir þjóða fjármuni í rannsóknasjóð franska fyrirtækisins, en það gerðist strax í febrúar síðastliðnum þegar COVID-19 fór að greinast í auknum mæli í Evrópu og Bandaríkjunum.
Í frétt Bloomberg kemur fram að sérfræðingar hafi varað við kapphlaupi þjóða um bóluefni. Óhjákvæmilegt sé að fátækar og fámennar þjóðir verði skildar eftir ef og þegar seinni bylgja faraldursins fer af stað.