Banaslysið í Breiðholtslaug: Lögregla vill ná tali af sundlaugargestum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af sundlaugargestum sem voru á vettvangi þegar karlmaður lést í heitum potti í Breiðholtslaug þann 10. desember síðastliðinn.

Lögregla er með málið til rannsóknar en maðurinn sem lést var á áttræðisaldri. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að hann hafi misst meðvitund í heitum potti í lauginni en tilkynning um málið barst lögreglu klukkan 15:13. Þegar lögregla kom á vettvang voru endurlífgunartilraunir þegar hafnar.

Maðurinn var fluttur á Landspítalann, en var úrskurðar látinn síðar um daginn.

Vegna þessa óskar lögreglan eftir að ná tali af sundlaugargestum sem voru á vettvangi þegar slysið átti sér stað og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið [email protected]