Banaslys við Lómagnúp

Banaslys varð í ofsaveðri við Lómagnúp í nótt þegar bifreið fór út af veginum. Þetta staðfesti lögreglan á Suðurlandi í samtali við Fréttablaðið.

Frekari upplýsingar um slysið liggja fyrir en í frétt Fréttablaðsins kemur fram að lögregla boði tilkynningu um málið innan stundar.

Tilkynning lögreglunnar klukkan 10:50:

Banaslys varð á Suðurlandsvegi austan við Kirkjubæjarklaustur um kl. 00:40 í nótt þegar flutningabíll lenti út af vegi og valt.  Farþegi í bílnum lést en ökumaður er óslasaður.   Ofsaveður var á vettvangi, á tíðum ekki stætt í hviðum og varð tjón á björgunartækjum þegar rúður fuku úr þeim. Einungis björgunarstörf voru því unnin á vettvangi en hann síðan yfirgefinn og verður unnið að vettvangsrannsókn í dag eftir því sem veður gengur niður. Að henni koma, auk lögreglu á Suðurlandi, tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa og eru þessir aðilar á leið á vettvang til þeirrar vinnu. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið eða rannsókn þess að sinni.