Banaslys í Stöðvarfirði: 18 ára frönsk stúlka lést í gær

Banaslys varð við Súlur í sunnanverðum Stöðvarfirði um klukkan 17:00 í gær þegar 18 ára frönsk kona sem var þar á göngu ásamt samferðafólki féll niður bratta hlíð.

Þetta kemur fram í skeyti sem lögreglan á Austurlandi birti á Facebook-síðu sinni nú á tólfta tímanum.

Í tilkynningunni segir að aðstæður á vettvangi hafi verið erfiðar og ljóst að björgunaraðilar sem komu að málinu hafi unnið þrekvirki við störf sín.

Lögreglan á Austurlandi vinnur að rannsókn slyssins en frekari upplýsingar um það koma ekki fram í skeyti lögreglu.