Banaslys varð norðan gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun þegar rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól skullu saman.
Annar ökumannanna lést og hinn slasaðist alvarlega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Tilkynning um slysið barst kl. 8.08, en myrkur og blautt var á vettvangi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.