Bana­slys í Reyðar­firði í gær­kvöldi

Bana­slys varð í Reyðar­firði í gær­kvöldi þegar öku­maður sex­hjóls velti hjóli sínu í fjall­lendi. Þetta kemur fram í skeyti frá lög­reglunni á Austur­landi.

Að sögn lög­reglu valt hjólið yfir öku­manninn með fyrr­greindum af­leiðingum. Að sögn lög­reglu er unnið að rann­sókn málsins og verða ekki frekari upp­lýsingar veittar að svo stöddu.