Banaslys varð í Njarðvíkurhöfn í nótt þegar eldur kom upp í bátnum Grímsnesi GK-555.
Sigvaldi Hólmgrímsson, skipstjóri bátsins, segir í samtali við Vísi að hinn látni hafi verið pólskur og hefði hann orðið fimmtugur á þessu ári. Hann lætur eftir sig konu og börn í Póllandi.
Skipverjar hugðust halda til veiða í dag og var áhöfnin sofandi um borð þegar eldurinn kom upp. Fjórir komust út að sjálfsdáðum ómeiddir en tveir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Öðrum þeirra er haldið sofandi, að því er fram kemur í frétt Vísis.
Sigvaldi segir að mikil sorg ríki meðal áhafnarinnar.
„Hann hefur búið á Íslandi í að verða tvo áratugi örugglega. Hann flutti með fjölskylduna heim til Póllands þegar konan hans veiktist en hefur starfað hérna þrátt fyrir það, fyrir utan eitt ár í Covid. Hann er örugglega búinn að vera hjá mér í tíu ár.“
Nánar er fjallað um málið á vef Vísis.