Banaslys í Breiðholti

Karlmaður á sjötugsaldri lést á Landspítalanum gær, en maðurinn féll af reiðhjóli á göngustíg í Seljahverfinu í Breiðholti síðastliðin laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu

Þar kemur fram að tilkynning um slysið hafi borist lögreglu á níunda tímanum á laugardagsmorgun og var maðurinn fluttur á slysadeild, en hann lést svo á spítalanum í gær eins og áður sagði. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.