Bana­slys á Höfða­bakka í nótt - lög­reglan rann­sakar til­drög slyssins

Bana­slys varð á Höfða­bakka í Reykja­vík í nótt en þar var ekið á gangandi veg­faranda. Lög­reglan greinir frá þessu í til­kynningu en lög­reglan og rann­sóknar­nefnd sam­göngu­slysa rann­saka til­drög slyssins.

Til­kynning um slysið barst um hálf­eitt­leytið í nótt, en bif­reið á leið norður Höfða­bakka, ná­lægt Ár­bæjar­safni, hafnaði á veg­farandanum, sem var karl­maður á fimm­tugs­aldri.

Hann var fluttur á Land­spítalann, en lést þar síðar um nóttina. Lokað var fyrir um­ferð um Höfða­bakka, á milli Bæjar­háls og Stekkjar­bakka, á meðan unnið var á vett­vangi.