Banamaðurinn sýnir enga iðrun eftir andlát Daníels

Lilja Björg Randversdóttir, unnusta Daníels Eiríkssonar, sem lést 2. apríl síðast­liðinn, kveðst ekki trúa því sem lögreglan segir um andlátið.

Daníel lést á Land­spítalanum af á­verkum sem hann hlaut í líkams­á­rás fyrir utan heimili sitt þann á föstudaginn langa. Hann var aðeins þrítugur að aldri þegar hann lést.

Ekki um slys að ræða

„Í þessum heimi er ekkert svona óvart slys,“ segir Lilja í viðtali við DV. „Það sem lögreglan segir mér að hafi gerst stenst bara engan veginn.“

Karlmaður sem hefur stöðu sakbornings í málinu var úr­skurðaður í fjögurra vikna far­bann í byrjun apríl, sem gildir til 7. maí. Ekki var gerð krafa um á­fram­haldandi gæslu­varð­hald og því var maðurinn látinn laus.

Maðurinn er sakaður um að hafa keyrt á Daníel en hann heldur því fram að um slys hafi verið að ræða. Lilja segir frásögnina ekki standast skoðun.

„Ég veit hvar hann lá og það stenst engan veginn að um slys hafi verið að ræða. Ef hann Danni hefur hangið utan á bílnum þessa stuttu vegalengd á svæðinu þá hefði hann klárlega ekki fengið þessa gríðarlegu miklu höfuðáverka og viðbeinsbrotnað.“

Djammar og mætir í World Class

Aðrir aðstandendur Daníels segja manninn sem keyrði bílinn ekki sýna neina iðrun.

„Ég myndi halda að maður sem hefur orðið valdur að dauða annars manns ætti að hafa hægt um sig í langan tíma á eftir,“ segir Sverrir Einar Eiríksson, eldri bróðir Daníels heitins.

„Þessi maður sýnir enga iðrun, það sást til hans á djamminu og í World Class um leið og hann var laus úr gæsluvarðhaldi. Ekkert í framferði hans ber þess merki að hann hafi orðið manni að bana og sé eyðilagður út af því,“ segir Guðný Sigríður Eiríksdóttir, systir Daníels.