Hvað gerir kona þegar Baltasar Kormákur sendir henni vinabeiðni á Facebook og byrjar að spjalla? Einhverjar konur myndu nú ekki slá höndinni á móti slíkum félagsskap.
Færsla sem kona að nafni Anna Helga deildi í Facebook-hópnum Fyndna frænka hefur vakið talsverða athygli. Í færslunni deilir hún skjáskotum af samskiptum hennar og einhvers sem þykist vera fremsti kvikmyndaleikstjóri okkar Íslendinga, Baltasar Kormákur.
Eins og sést hér að neðan kemur fljótlega í ljós að maðkur er í mysunni og maðurinn ekki sá sem hann segist vera. Hinn dularfulli maður fer að tala, á nokkuð bjagaðri íslensku, um veika ömmu sína. Þá hefur ein spurning „Baltasars“ fengið marga til að brosa: „Hvað finnst þér um kvikmyndir mínar og jafnvel minn persónulega lífsstíl?“
Af samskiptunum að dæma er nokkuð ljóst að um einhvers konar svikahrapp er að ræða sem siglir undir fölsku flaggi. Samskiptin eru þó þrælskemmtileg og spilar Anna Helga með hann.
Baltasar: Læknirinn sagði að hann þyrfti að fara í aðgerð á henni.
Anna Helga: Já ég skil
Anna Helga: Er hún enn 99 ára
Baltasar: Já, ég vil ekki að hún deyi
Anna Helga: Hún er orðin svo gömul
Anna Helga: Hún má deyja
Baltasar: Já ég veit það en læknirinn segir líkurnar á að hún geti lifað
Í samskiptum kemur svo fram að amma gamla þjáist af nýrnabilun en ekki COVID-19. Svo virðist vera sem Anna hafi slitið á samskiptin þegar hún reyndi að hringja í Baltasar í gegnum Facebook en hann svaraði ekki.
Anna Helga: Viltu ekki tala við mig?
Baltasar: Ég er upptekinn núna
Anna Helga: Ok
Anna Helga: Bæ
Baltasar: Hvert ætlarðu?
Anna Helga: Vinna