Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, segir að ákæran fyrir kynferðislegt áreiti hafi eyðilagt ævikvöld sitt og eiginkonu sinnar. Jón Baldvin var sýknaður í héraðsdómi í dag en hann var sakaður um að hafa káfað á rassi Carmen Jóhannsdóttur í matarboði á heimili Jóns Baldvins og Bryndísar Schram á Spáni árið 2018. Ákæruvaldið fór fram á 2 til 3 mánaða fangelsi yfir honum.
Jón Baldvin segir í viðtali við Mannlíf í kvöld að sýknan sé vissulega léttir, en það leynir sér ekki að hann er bálreiður. „Ég hafði það sterklega á tilfinningunni eftir að málið kom upp að þetta hafi verið samantekin ráð frá upphafi og sviðsett sem fjandsamleg innrás inn á okkar heimili. Það vildu fáir trúa því og ég skil það vel. Þetta er svo ótrúlegt. Þetta er svo ótrúlegur óheiðarleiki og óheilindi að það er eiginlega eðlilegt að fólki trúi því ekki,“ segir hann.
Jón Baldvin segir að konur hafi leikið aðalhlutverkið í kringum ásakanirnar:
„Er það virkilega svo að við eigum að trúa því að sú tilviljun væntanlega að allir þeir sem að málinu koma eru konur ráði för? Handhafar ákæruvaldsins eru varasaksóknarinn, Anna Barbara Andradóttir, varasaksóknari, Dröfn Kjærnested, og þriðji saksóknarinn, Kolbrún Benediktsdóttir. Svo er það fulltrúi lögreglu, Kristín Einarsdóttir. Eigum við virkilega að trúa því að þær láti undan þrýstingi almenningsálits til að víkja frá grundvallarreglum vegna þeirra staðreyndar að þetta eru allt saman konur? Var það virkilega þeirra ætlan að setja þetta upp sem einhvers konar prófmál í aðförinni að karlaveldinu?“
Hann sjálfur segist vera með þykkan skráp og hafi mátt þola margt í stjórnmálunum á árum áður:
„En þessi mál varðandi kynferðislega áreitni er það viðbjóðslegasta vegna þess að þarna er verið að reyna að eyðileggja orðstír, orðspor og mannorð; ekki bara mitt heldur allrar minnar fjölskyldu og þar með talið Bryndísar. Ég hef þykkan skráp og þoli ýmislegt einmitt vegna minnar pólitísku reynslu en þetta er búið að vera helvíti fyrir konuna mína. Þær mæðgur, Carmen og Laufey, bjuggu það til að þær hefðu orðið fyrir einhverju áfalli út af einhverju sem ekki gerðist. Sú manneskja sem hefur þolað verst áfall af völdum þessa óhróðurs er auðvitað konan mín. Og það mun ég seint fyrirgefa.“
Jón Baldvin segir að margir vinir hafi snúið baki við þau hjónin, þeir sem séu eftir séu vinir í raun. Þá hafi einhverjir gert mál Aldísar Schram, dóttur hans, að féþúfu:
„Ég lít á það sem níðingsverk og mun aldrei fyrirgefa. Þeir taki það til sín sem eiga það. Þetta hefur náttúrlega spillt ævikvöldinu. Þetta hefur eitrað lífið síðustu árin sem áttu að vera hið friðsæla ævikvöld.“