Bald­vin Z opnar sig um mis­notkun í barn­æsku

Ís­lenski stjörnu­leik­stjórinn Bald­vin Zop­honías­son, betur þekktur sem Bald­vin Z, greindi í fyrsta skipti opin­ber­lega frá því að hann hafi orðið fyrir mis­notkun í æsku í ein­lægu við­tali við Snæ­björn Ragnars­son.

Bald­vin lýsti þeirri skelfi­legu lífs­reynslu að hafa verið mis­notaður kyn­ferðis­lega af ná­granna sínum þegar hann var að­eins sex eða sjö ára gamall. „Ég er alinn upp við það að afi minn hafði gerst brot­legur gegn börnum,“ út­skýrir Bald­vin.

„Það litar líka æskuna mína að alast upp við það, svona fjöl­skyldu­sprengingu og ég þekkti ekkert stóra hluta fjöl­skyldunnar mömmu megin út af sprengingu sem varð innan fjöl­skyldunnar hjá afa. Svo hafði ég sjálfur lent í ná­granna þegar ég er krakki og ég byrgi það inni út af fjöl­skyldu­málinu.“

Náði ekki að vinna úr áfallinu

Það hafi verið erfitt að skilja al­menni­lega hvað væri rétt og rangt á þessum aldri segir Bald­vin. „Það er eitt­hvað sem gerir það að verkum að ég næ ein­hvern veginn að loka og slaufa þessu í mjög langan tíma,“ segir Bald­vin.

„Það er ekki fyrir en maður fer sjálfur að skoða þessa hluti í lífinu að maður áttar sig á því að hér sé ekki allt með feldu. Við vorum fleiri strákar sem lentu í þessum gæja og ég hef bara talað við einn þeirra um þetta.“

Þessir at­burðir höfðu gríðar­leg á­hrif á ung­lings­árin og viður­kennir Bald­vin að hann hafi ekki komist yfir þessa lífs­reynslu fyrr en hann kynntist eigin­konu sinni.

Bald­vin kveðst oft hafa velt því fyrir sér hvort hann ætti að tala um þetta mál. „Vonar­stræti var í raun mynd sem var byggð á fjöl­skyldunni minni að hluta til,“ segir Bald­vin.


Velti samkynhneigð fyrir sér

Fleiri kvik­myndir Bald­vins eru byggðar á hans eigin lífi, til að mynda Órói, sem fjallar um strák sem er að velta fyrir sér hvort hann sé sam­kyn­hneigður. „Ég velti þessu fyrir sér fljót­lega eftir að besti vinur minn kom út úr skápnum og ég bara frá­bært, þetta er frá­bært og þú ert búinn að finna þig og við bara enduðum í sleik. Það var bara í raun ég að segja, ég elska þig, alveg sama hvað,“ viður­kennir Bald­vin.

„Svo seinna fer ég að velta þessu fyrir mér, hvað með mig? Af hverju er alltaf allt svona skrýtið hjá mér. Hlutirnir bara gengu ekki upp hjá mér og alls­konar til­finningar sem ég bara skildi ekki. Þá þurfti ég bara að vinna úr þessu öllu.“