Baldur vill ekki sjá þessar breytingar í borginni: „ Verið að vega með svo grófum hætti að val­frelsi borgar­búa“

Baldur Borg­þórs­son, fram­bjóðandi í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokksins, segir að borgar­búar og í raun þorri íbúa á höfuð­borgar­svæðinu fengu heldur kaldar kveðjur ný­verið.

„Birt voru á­form um nýja gjald­töku á þá sem hyggjast nota bílinn sinn á komandi árum og kynntar voru hug­myndir um gjald upp á allt að kr. 675 fyrir hverja ferð sem ekið er um lykil­gatna­mót borgarinnar. Stefnt er að því að gjald­takan hefjist þegar á þessu ári,“ skrifar Baldur í að­sendri grein áVísir.is

„Þetta þýðir sem dæmi:

Í hvert sinn sem í­búar aka um gatna­mót Sæ­brautar/Reykja­nes­brautar og Vestur­lands­vegar/Miklu­brautar er rukkað gjald upp á allt að kr.675

Kostnaður getur því hæg­lega numið hálfri milljón eða meiru á ári sam­kvæmt þessu.

Gjaldið hefur gengið undir ýmsum nöfnum:

Vega­tollur

Tafar­gjald

Flýti­gjald

Að endingu hefur starfs­hópur um borgar­línu komist að niður­stöðu um að nafnið skuli vera flýti­gjald,“ heldur Baldur á­fram.

Hann segir að þetta „hljómi“ já­kvætt en raunin sé reyndar sú að það er ekkert já­kvætt við flýti­gjald.

„Flýti­gjaldið er nefni­lega alls ekki neitt flýti. Það er refsiskattur og þvingunar­tæki sem mun kosta borgar­búa stór­fé ár­lega.

Refsiskattur sem beint er gegn fólki og fjöl­skyldum sem vilja gjarnan njóta þeirra lífs­gæða sem bíllinn sannar­lega er og hátt í 90% borgar­búa kjósa að njóta,“ segir Baldur.

Hann spyr í hvaða til­gangi er verið að vega með svo grófum hætti að val­frelsi borgar­búa?

„Svarið er ein­falt: Borgar­lína

Tals­menn borgar­línu gera sér fulla grein fyrir að bíllinn muni á­fram verða vin­sælasti kostur borgar­búa. Við það á ekki að una. Því á að grípa til þvingunar­að­gerða og þeim gefið nafnið flýti­gjald.“

„Stór hluti borgar­búa mun því mögu­lega missa fjár­hags­lega getu til að eiga bíl og njóta þeirra lífs­gæða og frelsis sem því fylgir en eiga þó eitt svar. Öflugt svar.

Að kjósa það fólk sem skipar sæti á lista Sjálf­stæðis­flokksins í Reykja­vík til að leiða nýjan meiri­hluta í borgar­stjórnar­kosningum þann 14.maí næst­komandi.“

Hann segir að fólk eigi að hafna hvers­kyns þvingunum og for­ræðis­hyggju.

„Fólk sem ætlar að leyfa borgar­búum sjálfum að velja það sem hentar þeim og þeirra fjöl­skyldu best hverju sinni,“ skrifar Baldur að lokum.