Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, tjáir sig um innrás Rússa inn í Úkraínu á Facebook síðu sinni nú í morgun. Hann segir það alvarlegt þegar íslenskur almenningur fær ekki rétta mynd af ástandinu þar í landi.
„Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa vikum saman - frá því nokkru fyrir áramót- sagt frá yfirvofandi innrás rússneska hersins í Úkraínu. Flestir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum austan hafs og vestan hafa tekið undir þetta mat í öllum erlendum miðlum,“ skrifar Baldur.
„En lítil umræða hefur verið um þetta hér á landi en talað við fólk sem segir að Rússar muni ekki ráðast inn í Úkraínu. Hvaðan þær heimildir koma hef ég aldrei vitað. Hvað segja þeir í dag? En fjölmiðlar munu halda áfram að láta þá spá úti í loftið og ekki taka mark á upplýsingum frá Bandaríkjunum og stórum ríkjum í vestur Evrópu. ,,Ég verð nú bara að segja það” eins og Denni sagði nú alltaf í denn… Það er alvarlegt þegar íslenskur almenningur fær ekki rétta mynd af ástandinu.“