Baldur: Þetta má ekki gerast aftur!

„Enginn á að missa heimili sitt vegna að­stæðna og að­gerða sem þeir hafa ekkert með að gera og engar varnir gegn. Allt skal gert til að hindra slíkar hörmungar,“ segir Baldur Borg­þórs­son, vara­borgar­full­trúi Mið­flokksins, í að­sendri grein á vef Vísis.

Baldur skrifar þar um stöðu mála í efna­hags­lífinu vegna CO­VID-19-far­aldursins og segir hann að þúsundir fjöl­skyldna sjái nú fram á að missa heimili sín komi ekki til að­gerða af hálfu ríkis­stjórnar landsins.

„Hjá sumum er tekju­fallið veru­legt hjá öðrum al­gjört,“ segir Baldur sem veltir fyrir sér hvað er til ráða.

„Eigum við aftur að horfa upp á þúsundir fjöl­skyldna missa heimili sín að ó­sekju? Svarið er Nei. Þegar svona er komið þarf að hugsa út fyrir kassann og finna lausnir,“ segir Baldur sem stingur upp á því að lána­stofnunum verði gert skylt að frysta lán og skuld­bindingar þeirra sem hafa misst getuna til að standa undir slíku.

„Frysting felur í sér að engir vextir safnast, enginn kostnaður. Lán og skuld­bindingar halda krónu­tölu sinni. Við­komandi lána­stofnanir fá á móti núll vexti hjá SÍ fyrir sam­svarandi upp­hæð og fryst er. Sömu að­ferða­fræði mætti síðan beita víðar,“ segir hann og nefnir að sveitar­fé­lög gætu boðið upp á frystingu fast­eigna­gjalda með sama hætti. Þá væri hægt að beita sömu að­ferða­fræði vegna þeirra sem eru á leigu­markaði.

„Undir­ritaður gefur sig ekki út fyrir að vera sér­menntaður í fjár­mála­fræðum en hefur þó full­vissu fyrir því að að­gerðir sem þessar eru sannar­lega fram­kvæman­legar. Allt sem þarf er vilji. Eitt er ljóst. Ekkert okkar vill horfa upp á fólk og fjöl­skyldur missa heimili sín og býli aftur. Aldrei aftur.“