Baldur segir fulla ástæðu til að óttast Rússana: „Eitt skemmdarverk getur valdið mjög miklum skaða í litlu ríki“

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, segir að stóraukin umsvif rússneska hersins kalli á ný viðhorf til varnarmála hér á landi.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Baldur í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að Íslendingar þurfi að meta þörfina á að hafa hér lítið varnarlið til að koma í veg fyrir eða verjast hugsanlegum skemmdarverkum eða innrás, uns stærra lið myndi berast.

„Það hefur aldrei verið meiri hætta á átökum í Evrópu en nú frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Við þurfum að bregðast við því,“ segir Baldur og bætir við að flotinn sé sterkasti liður rússneska hersins. Bendir hann á að flotinn komist ekki um Miðjarðarhafið og eigi nú í vandræðum með að athafna sig á Eystrasaltinu vegna inngöngu Finna og Svía í NATO.

„En rússneski flotinn getur athafnað sig í Norður-Atlantshafi. Ef átök breiðast út verðum við að vera viðbúin,“ segir Baldur. Hann bætir við að hjá litlum ríkjum eins og Íslandi snúist allt um að koma í veg fyrir árás.

„Eitt skemmdarverk getur valdið mjög miklum skaða í litlu ríki,“ segir Baldur og bendir á mikilvægi Keflavíkur í alþjóðasamgöngum.