„Orðin féllu af hálfu fulltrúa meirihluta borgarstjórnar að loknum fundi þar sem tekist var á um varanlega lokun Laugavegs allt frá gömlu Mjólkursamsölunni til enda við Lækjargötu.“
Þetta segir Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins, í aðsendri grein á vef Vísis. Þar greinir hann frá orðum sem ónafngreindur fulltrúi í meirihlutanum lét falla eftir fund borgarstjórnar á dögunum, en tilefnið var spurning Baldurs vegna fyrirhugaðs samráðsfundar með íbúum og hagaðilum á svæðinu.
Baldur segir að spurningin hafi verið einföld:
„Hvað ætlið þið að gera ef allir íbúar og allir hagaðilar andmæla áformum um lokun götunnar? Svarið var líka einfalt: „Okkur er alveg sama hvað fólk vill, við ætlum að gera þetta.“ Þarna var ljóst að til stóð að auglýsa samráðsfund sem jafnframt var búið að ákveða að virða einskis.“
Baldur segist af því tilefni hafa farið fram á að fundurinn yrði auglýstur rétt, sem sýndarsamráðsfundur en þeirri ósk hafi verið hafnað.
„Ekkert hefur breyst og nú stendur til að eyðileggja ósnortna strandlengju rétt við Nauthólsvík. Nú skal reisa borgarlínubrú og kannski sleppa glersundlauginni sem sumum fulltrúum meirihlutans hugnaðist að hengd yrði utan á brúnna miðja. Lögum samkvæmt þarf að gera arðsemismat á framkvæmdina. Þar sem bara strætó má nýta mannvirkið en ekki almenn bílaumferð myndi slíkt arðsemismat þýða falleinkunn á verkefnið. Meirihlutinn er með lausn við því: Ekkert arðsemismat verður gert.“
Baldur segir að aftur sé boðað til samráðsfundar undir fallegum merkjum, Nýr Skerjafjörður, en ekkert tilefni sé til að ætla að um samráðsfund verði að ræða heldur miklu frekar sýndarsamráðsfund.
„Meirihluta borgarstjórnar er þegar upp er staðið „alveg sama hvað fólk vill“,“ segir hann.
Grein Baldurs má lesa í heild sinni hér.