Baldur: Enginn klókari en Bjarni að koma sér úr vand­ræðum

Baldur Þór­halls­son, prófessor við stjórn­mála­fræði­deild Há­skóla Ís­lands, á ekki von á því að Katrín Jakobs­dóttir, for­maður VG og Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra muni slíta ríkis­stjórnar­sam­starfinu vegna máls Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Baldur stakk niður penna á Face­book-síðu sinni í morgun þar sem hann velti upp þeirri spurningu hve­nær ráð­herra segir af sér og hve­nær ekki.

„Mestu máli skiptir af­staða for­ystu­fólks og stofnana flokks ráð­herra. Þetta var raunin þegar Sig­mundur Davíð og Albert sögðu af sér. Einnig getur af­staða gras­rótar flokks skipt miklu eins og í máli Guð­mundar Árna. Skoðun sam­starfs­flokka í ríkis­stjórn getur líka leitt til af­sagnar eins og í máli Sig­ríðar þegar VG krafðist af­sagnar hennar. Eftir­fylgni fjöl­miðla og lög­reglu­rann­sókn í máli Hönnu Birnu leiddu aftur á móti til af­sagnar hennar,“ segir Baldur og bætir við að krafa stjórnar­and­stöðu um af­sögn ráð­herra skipti sjaldnast máli þó að hún sé fyrsta skrefið í um­ræðum um hugsan­lega af­sögn.

Þá bætir hann við að ráð­herrar segi heldur ekki af sér þó and­stæðingar þeirra kalli eftir af­sögn á Twitter.

„Hvað þá með af­sagnir ráð­herra Sjálf­stæðis­flokksins? For­ystu­fólk, stofnanir og gras­rót Sjálf­stæðis­flokksins hafa sýnt mikla þolin­mæði gagn­vart ráð­herrunum flokksins og kalla sjaldnast eftir af­sögn þeirra. Það hefur ekki breyst. Þá er líka mikil­vægt að halda til haga að sú hefð hefur myndast hér á landi að for­sætis­ráð­herra og flokkar skipta sér sjaldnast af ráð­herra­skipan sam­starfs­flokka sinna í ríkis­stjórn. Þeir standa með fá­einum undan­tekningum á­valt að baki ráð­herrum stjórnarinnar. Í raun má segja að al­mennt sé litið á annað sem kröfu um stjórnar­slit.“

Baldur segir að al­mennt talið muni mál Bjarna lúta ofan­greindum lög­málum og þá megi bæta við að Bjarni virðist al­mennt njóta trausts meðal Sjálf­stæðis­manna. Hann segir að Bjarni sé lík­lega í sterkari stöðu innan flokksins í dag en oft áður.

„Bjarni hefur líka marg­oft sýnt að enginn stjórn­mála­maður á landinu er betri að koma sér út úr vand­ræðum.“

Baldur bendir svo á að traust og gott sam­starf virðist vera milli for­ystu­fólks ríkis­stjórnarinnar. Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra og Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra séu miklir reynslu­boltar í pólitíkinni og þeim skriki ekki fótur þrátt fyrir á­gjöf.

„Stöðug­leikinn í stjórn­málum sem for­sætis­ráð­herra talar svo oft um snýst um að standa af sér brot­sjó þó að það þýði að hún og VG fái skömm í hattinn (eins og t.d. í máli Kristjáns Þórs og Sam­herja). Katrín og Svan­dís munu ekki slíta ríkis­stjórnar­sam­starfinu vegna máls Bjarna. Björt fram­tíð fór flatt á því að slíta stjórnar­sam­starfinu á sínum tíma. Katrín myndaði þessa ríkis­stjórn til þess að þannig mál myndu ekki endur­taka sig. - Svo getur fólk haft ó­líkar skoðanir á þessum hefðum og vinnu­brögðum.“