Baldur búinn að fá nóg: „Ég tilkynni hér með úrsögn mína úr Miðflokknum“

Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins, hefur sagt sig úr Miðflokknum. Baldur birti yfirlýsingu þess efnis á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.

„Ég tilkynni hér með úrsögn mína úr Miðflokknum. Ég lýsi því jafnframt yfir að ég mun standa við kjör mitt með framboði M-lista og sitja áfram sem fyrsti varamaður framboðsins í borgarstjórn Reykjavíkur til loka yfirstandandi kjörtímabils.“

Í yfirlýsingu sinni segir Baldur að sveitarstjórnarmenn séu sjálfstæðir í störfum sínum og hyggst hann rækja skyldur sínar gagnvart kjósendum af sömu heilindum og einlægni og hann hefur gert frá upphafi.

„Ekki er þörf á að tíunda ástæður ákvörðunar minnar að öðru leyti en því að ég hef í störfum mínum í borgarstjórn ítrekað orðið vitni að starfsháttum og framkomu undir merkjum Miðflokksins sem ég get með engu móti sætt mig við,“ segir Baldur.

Gustað hefur um Miðflokkinn að undanförnu en í október síðastliðnum sagði Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, einn af stofnendum flokksins, sig úr honum. Hann sagði við það tilefni að margar ástæður væru fyrir úrsögninni.