Baldur: Athyglisvert hve þétt Katrín stendur við bakið á Bjarna – „Snjallt útspil sem kemur mörgum á óvart“

Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur segir það vekja athygli hve þétt Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra standi við bak Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í útboðsmálinu svokallaða.

Ríkisstjórnin tilkynnti í gær að Bankasýslan yrði lögð niður en mjög hörð gagnrýni hefur komið fram á það hvernig var staðið að sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka á dögunum. Baldur fer yfir málið í samtali við Fréttablaðið í dag.

„Það sem skiptir ríkisstjórnarflokkana mestu er að tryggja stöðugleika á stjórnarheimilinu og að stjórnin hreinlega haldi velli,“ hefur Fréttablaðið eftir Baldri. Hann segir að erfiðara sé að segja til um hvort útspilið, að leggja niður Bankasýsluna, sem Baldur kallar bæði óvænt og róttækt, lægi öldurnar í samfélaginu.

„Ég hafði ekki séð þá kröfu fyrir að Bankasýslan yrði lögð niður – þannig að út frá pólitíkinni er þetta snjallt útspil sem kemur mörgum á óvart. Með þessu er stjórnin að segja að Bankasýslan beri ábyrgð og hafi klúðrað málinu illilega,“ segir hann.

Þá segir hann það styrkja stöðu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í ríkisstjórninni hve þétt Katrín hefur staðið með honum.

„Katrín stendur miklu nær Bjarna í þessu máli en þegar Sigurður Ingi lét óviðurkvæmileg orð falla. Þá vísaði hún til siðareglna og sagði að ráðherrar þyrftu að lúta þeim.“

Katrín var einmitt spurð út í þetta á Fréttavakinni á Hringbraut í gærkvöldi. Þar þvertók hún fyrir að standa þéttar við bak Bjarna en Sigurðar Inga.

Nánar í Fréttablaðinu í dag.