„Eins og hjá mörgum sem eru að fara í gegnum þetta þá er dagarnir misjafnir og sveiflur. Það kom smá bakslag hjá honum en þetta er samt á réttri leið hjá honum vonandi,“ sagði Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á upplýsingafundi almannavarna í morgun.
Þar var Rögnvaldur meðal annars spurður út í líðan Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns sem er nú á níunda degi veikinda vegna COVID-19. Víðir greindi frá því þann 28. nóvember síðastliðinn að hann og eiginkona hans hefðu verið verulega slöpp daginn áður. Líðanin þann daginn, það er þann 28. nóvember, væri skárri.
Rögnvaldur fór ekki nánar út í það um hvers konar bakslag var að ræða en nefndi þó að vonandi væri allt á réttri leið. „Við hugsum til hans og óskum honum góðs bata,“ sagði hann.