„Ég tel ekkert óeðlilegt við þessa hlutabótaleið sem við vorum að nýta, þannig er það,“ segir Sigþór Sigurjónsson, eigandi Bakarameistarans, í samtali við Kjarnann.
Kjarninn greinir frá því að Bakarameistarinn hafi hagnast um 22 milljónir króna á síðasta ári og félagið ætli að greiða eigendum arð. Fyrirtækið nýtti sér hlutabótaleið stjórnvalda en alls voru 46 starfsmenn settir á hlutabætur í mars og apríl í fyrra.
Ef marka má svör Sigþórs stendur ekki til að fyrirtækið greiði til baka þá fjármuni sem starfsmenn fengu í formi hlutabóta. Segir að hann að það hafi ekkert verið rætt í stjórn félagsins.
„Ég held að það sé allt eðlilegt við það sem við erum að gera þarna,“ segir hann.
Í frétt Kjarnans er vísað í skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem fram kom að úrræðið hafi verið opið til að byrja með. Í hópi fyrirtækja sem hefðu nýtt sér hlutabótaleiðina væru fyrirtæki sem búa að öflugum rekstri og traustum efnahag. Ekki væri séð af lögunum að slíkt hafi verið ætlunin.