Bærinn minn í kvöld: Leyndar perlur Reykjanessins

Það viðraði vel til kvikmyndatöku þegar þeir Björn Sigurðsson myndatökumaður og Sigmundur Ernir sóttu Reykjanesbæ heim undir síðustu helgi, en afraksturinn verður sýndur á Hringbraut í kvöld þegar fimmti og næstsíðasti þátturinn af þáttaröðinni Bærinn minn fer í loftið.

Þegar eru heimsóknir á Blönduós, Fjarðabyggð, Akureyri og Vestmannaeyjar að baki, en nálgast má þá þætti á hringbraut.is og að viku liðinni geta svo sjónvarpsáhorfendur fylgst með heimsókn þeirra félaga í Snæfellsbæ. Í kvöld er það aftur á móti Reykjanesbær sem ber fyrir auga vélarinnar, eitt fjölmennasta byggðarlag landsins, en saga þess, sjarmi og sérstaða nýtur sín einkanlega vel í þættinum, en Völlurinn kemur þar ríkulega við sögu, svo og Skessuhellir, Fitjarnar, Stekkjarkotið, Innri-Njarðvíkurkirkja, Hvalsneskirkja, brúin á milli heimsálfa, Gunnuhver, Garðskagaviti og hvítar fjörurnar. Fjöldi viðmælenda er í þættinum og myndskotin eru jafnt úr lofti og af láði. Þátturinn hefst klukkan 21.30 í kvöld.