Bærinn minn: Í Fjarðabyggð finnurðu allt og alla

Það er ekki aðeins að finna kröftugt atvinnulíf og heillandi menningu í Fjarðabyggð á Austfjörðum heldur líka einstæða náttúru þar sem elstu fjöll landsins taka á sig ótrúlegustu myndir.

Þetta kemur skýrt fram í þættinum Bærinn minn á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, en að þessu sinni liggur leið Sigmundar Ernis í sjávarplássin frá Mjóafirði í norðri til Breiðdalsvíkur í suðri, alls sjö þorpa og kaupstaða sem mynda eitt víðfeðmasta sveitarfélag landsins, en óhætt er að segja að þar finni ferðafólk allt og alla, slíkt er fjölbreytnin á staðnum. Í þættinum er sjarma og sérstöðu Fjarðabyggðar hampað með fjölda hressilegra viðtala við heimamenn, auk þess sem helstu söfnin á svæðinu eru heimsótt og margar leyndustu náttúruperlurnar skoðaðar, svo sem Páskahellir utan við Neskaupstað sem er einstakur skúti þar sem fjörgömul hraunlög hafa runnið yfir myndarlegan skóg, svo eftir standa áberandi göt í lögunum sem eru til merkis um hrikaleg umbrot síns tíma.

Sjónvarpsþættirnir Bærinn minn hófu göngu sína í síðustu viku með heimsókn í Blönduós og höfðu fjölmargir áhorfendur þáttarins á orði að hann hefði opnað augu þeirra fyrir ótrúlega mörgum upplifunarkostum í bænum við ósa Blöndu og nágrenni hans. Ugglaust munu áhorfendur upplifa það sama við að skoða sig um í Fjarðabyggð.

Í næstu viku liggur svo leið þeirra Sigmundar Ernis og myndatökumannsins Björns Sigurðssonar til Akureyrar og þar á eftir er komið að Vestmannaeyjum.

Bærinn minn er frumsýndur öll þriðjudagskvöld kl. 21:30.