Stjórnarfrumvarp um niðurfellingu tolla á vörur sem upprunnar eru í Úkraínu var samþykkt á Alþingi í gær. Í umsögnum um frumvarpið var að finna heldur sérstaka umsögn frá Bændasamtökum Íslands.
Þar segjast samtökin meta það svo að lausn á vanda Úkraínu sé falin í því að bundinn verði endir á stríðsátökin sem þar geisa.
„Þá er það afstaða Bændasamtaka Íslanda að lausn á vanda Úkraínu felist í því að bundinn verði endir á stríðsátökin sem þar geisa. Ísland eigi því að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að gert verði vopnahlé eða með öðrum hætti bundinn endi á stríðsátökin,“ segir í umsögn Bændasamtakanna.
Þá eru samtökin tilbúin að koma að málinu og hjálpa til við að enda stríðið: „Verði þess óskað eru fulltrúar samtakanna reiðubúnir til frekari aðkomu að máli þessu til frekari umræðu og skoðanaskipta.“
Hvað varðar frumvarpið sjálft taka Bændasamtökin undir varnarorðin í greinargerð frumvarpsins um að ef það verði samþykkt, líkt og gerðist í gær, þá geti það leitt til þess að fluttar yrðu til Íslands landbúnaðarvörur frá Úkraínu í meira mæli en nú sem geti haft neikvæð áhrif á verð og framboð íslenskra landbúnaðarvara.
„Í ljósi erfiðrar stöðu í íslenskum landbúnaði sökum gríðarlegra hækkana á aðföngum hafa samtökin því eðlilega áhyggjur af því hvaða áhrif innflutningurinn kann að hafa á félagsmenn.“
Karen Kjartansdóttir almannatengill benti fyrst á umsögnina á twitter og hafa yfir 100 manns líkað við færsluna.
1/3 Mér fannst þessi greining Bændasamtakanna á vanda Úkraínu, sem óvænt birtist í umsögn samtakanna við frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra, um að fella niður tolla af vörum frá Úkraínu, ekki fá næga athygli í vikunni. pic.twitter.com/Uus7SqKLJL
— Karen Kjartansdottir (@karenkjartansd) June 15, 2022