Jakob F. Ásgeirsson, stofnandi og eigandi bókaútgáfunnar Uglu, sakar forsvarsmenn Pennans Eymundsson um aðför að fyrirtækinu eftir að bækur útgáfunnar voru endursendar frá Pennanum Eymundsson til Uglu á dögunum. Alls var um að ræða 25 titla á fjórum vörubrettum.
Morgunblaðið fjallar um þetta mál í dag.
Jakob telur að ástæðuna megi rekja til þess að bækur útgáfunnar séu aðgengilegar í streymi hjá Storytel. Þær upplýsingar hafi hann fengið frá vörustjóra Pennans og þá hafi Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, ritað bréf fyrr á þessu ári þar sem hann gagnrýndi Storytel harðlega.
„Núna ætlar Eymundsson sem sagt að drepa þetta fyrirtæki, Uglu, til þess að koma í veg fyrir að nýjar bækur fari í streymi hjá Storytel,“ segir Jakob við Morgunblaðið.
Í samtali við Morgunblaðið segir Ingimar að það sé ekki stefna Pennans Eymundsson að taka bækur sem jafnframt eru í streymi hjá Storytel úr sögu. Hann svaraði því þó ekki efnislega hvers vegna bækur Uglu hefðu verið teknar úr sölu.