Hart er deilt um leigusamninga Garðabæjar við Terra um einingahús fyrir leikskóla í Urriðaholti. Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Garðabæjarlistans, hefur gagnrýnt samning bæjarins og að lögfræðiálit bæjarins um lögmæti þess að sleppa útboði hafi ekki verið opinberað.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs, fer hörðum orðum um Söru á Facebook:
„Þetta er ótrúlegur málflutningur hjá oddvita minnihlutans!!!,“ segir hún. „Hér er ekki um útboðsskyld viðskipti að ræða og ef til kaupa kemur eru fasteignakaup líka undanskilin útboðsskyldu.“
Í gildi séu reglur sem bærinn fer eftir: „Málflutningur oddvita Garðabæjarlistans er óvandaður og elur á vantrausti bæjarbúa.“
Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Kópavogi, svaraði: „Þetta eru ekki fasteignakaup. Afhverju má ekki opinbera lögfræðiálitið?“
Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, tók í sama streng:
„Það myndi auðvitað hjálpa fólki að taka afstöðu ef lögfræðiálitið væri einfaldlega birt. Hvers vegna er það ekki gert?“
Guðfinnur Sigurvinsson, aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi flokksins í Garðabæ, segir þetta sprenghlægilegt: „En auðvitað ekkert sem kemur á óvart úr þessari átt og bara Viðreisnarkórinn á Facebook (sem þarf liðstyrk utan sveitarfélagsins vegna fámennis) sem tekur undir. Ef þetta hefði ekki verið gert, þ.e. að kaupa og leigja svona bráðabirgðahúsnæði, sem er alþekkt hjá sveitarfélögum þá værum við einfaldlega ekki að geta veitt börnum í Urriðaholti leikskólapláss sem nú er komið fyrir.“
Sara Dögg sagði augljóst á hvaða forsendum samningurinn væri gerður og upp hófst mikið orðaskak þeirra á milli þar sem Reykjavíkurborg var dregin inn í málið.
„Hitt er svo annað mál og stærra að það væri kannski mark á Viðreisn takandi í leikskólamálum ef ekki væri fyrir aðkomu ykkar að stjórn borgarinnar þar sem biðlistar eftir leikskólaplássi eru lengri en nóttin og þar sem grunnskólinn í Fossvogi fékk árum saman að mygla ofan af börnunum án þess að borgarfulltrúar Viðreisnar hefðu í sér að bregðast við með myndarlegum hætti eða svo mikið sem tala við áhyggjufulla foreldra,“ sagði Guðfinnur.
Sara svaraði fullum hálsi:
„Ég held reyndar að leikskólavandinn í rvk sé eldri en Viðreisn. Veit ekki betur en að verið sé að reyna að vinda ofan af honum. En rétt staðan er ekki góð í borginni. Það afsakar bara ekki þá glötuðu stöðu sem er komin upp í Garðabæ á ykkar vakt allt svo.“
Sara beindi svo orðum sínum að Áslaugu: „Miðað við þau gögn sem ég hef undir höndum er það mitt mat að ekki sé hægt að tryggja með óyggjandi hætti að þessi leið standist lög um opinber innkaup. Tímafaktorinn er síðan ykkar