Aldís Hafsteinsdóttir, bæjrastjóri Hveragerðist og systir Guðrúnar Hagfsteinsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, bryddar upp á skemmtilegri hugmynd að morgunmat í færslu á Facebook-síðu sinni.
Morgunmatur hefur oft verið talin mikilvægasta máltíð dagsins, þó svo að þau fræði sé enn algerlega ósönnuð. Þrátt fyrir það þykir mörgum erfitt að finna sér eitthvað almennilegt í morgunmat, eitthvað sem stendur með manni um hríð.
Nú hefur Aldís mögulega komið með lausnina á því vandamáli: Ís!
Aldís deilir frétta frá Mbl.is sem segir frá nýjum og jákvæðum rannsóknum á ísáti. Þar kemur fram að ísát sé mun heilsusamlegri en áður var talin.
Aldís fagnar þessum niðurstöðum mjög enda borðar hún ís með nær öllum mat: „Nákvæmlega það sem við höfum alltaf sagt, Kjörísfólkið ! ! ! Enda höfum við borðað ís út á brauðsúpuna, út á grautana, með öllum kökum og yfirleitt bara alltaf þegar við viljum borða eitthvað gott...“ segir Aldís.
Þá er henni ekkert að vanbúnaði: „Nú bætir maður ís á matseðilinn í morgunmatnum og lífið er fullkomnað,“ segir Aldís, aldeilis glöð.
Þess má geta að Aldís er einn hluthafa í stórtæka ísframleiðslufyrirtækinu Kjörís.