Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar, greindist með COVID-19 smit í síðustu viku. Gísli hvetur landsmenn til að fara að fyrirmælum yfirvalda sem miða að því að takmarka útbreiðslu veirunnar. Sjálfur er hann í hæsta áhættuflokki vegna undirliggjandi þátta.
Gísli greinir frá þessu í pistli sem birtist á vef Vísis nú í hádeginu.
„Síminn hringdi rétt fyrir hádegi, 18. mars. Sýnið frá deginum áður reyndist jákvætt og ég þar af leiðandi með Covid-19. Læknir á Landspítalanum ræddi við mig dágóða stund og lagði mat á stöðuna. Hann upplýsti svo að ég væri metinn í hæsta áhættuflokki, af þremur, vegna undirliggjandi þátta.“
Gísli kveðst þakklátur íslensku heilbrigðiskerfi og sérstaklega íslensku heilbrigðisstarfsfólki.
„Ef allt færi á versta veg þá er ennþá nóg pláss á Landsspítalanum – og lausar öndunarvélar. Guði sé lof fyrir það! Vonandi tekst landlækni, sóttvarnalækni og almannavörnum að halda því þannig – með aðstoð almennings. Nú þarf nefnilega almenning til að halda heilbrigðiskerfinu í toppstandi.“
Gísli minnir svo á að það hversu bráðsmitandi veiran er. Máli sínu til stuðnings nefnir hann dæmi af 33 ára Þjóðverja sem fundaði með viðskiptakonu frá Shanghai dagana 20. og 21. janúar. Maðurinn veiktist 24. janúar, fékk háan hita, en hélt svo til vinnu 27. janúar. Konan veiktist í flugvélinni á leiðinni heim og greindist með COVID-19 þann 26. Janúar. Maðurinn var þá kallaður til rannsókna í Munchen þann 27. janúar þar sem hann greindist jákvæður.
„Þann 3. mars síðastliðinn var hægt að rekja, með erfðarannsóknum, megnið af öllum tilfellum í Evrópu til ofangreinds atburðar, þar á meðal þau 3000 tilfelli sem þá voru á Ítalíu – frá einu smiti! Þann 20. mars höfðu verið greind 47.021 smit á Ítalíu og 4.032 dauðsföll. Fólkið hér að ofan var algerlega grunlaust á fundum sínum og gat engan veginn varað sig, ekki verður sakast við þau.
Sá Íslendingur sem dreifir smiti, vitandi að hann ætti að vera í sóttkví, eða fer óvarlega og gegn fyrirmælum yfirvalda, hefur enga afsökun. Sá hinn sami gæti leitt af sér 1.000 smit – og e.t.v. 7 dauðsföll. Eitt þessara dauðsfalla gæti verið bróðir, afi eða móðir. Það er eins líklegt að hann muni aldrei heyra um sinn þátt í því.“
Gísli er á tíunda degi veikindanna og hefur hann verið þokkalega hress lengst af. Hann segir að gærdagurinn hafi þó verið erfiður og var hann örmagna í gærkvöldi. Hann er þó skárri í dag og reiknar með að geta farið aftur úr húsi í aprílmánuði.
„Betur búinn til að takast á við stór verkefni og að búa til betri heim með ykkur hinum.“
Hér má lesa pistil Gísla í heild sinni.