Bæjarstjóri Akureyrar vill ekki borgarbúa: „Jæja Akureyri - ég er á leiðinni“

Óhætt er að segja að ummæli Ásthildar Sturludóttur, bæjarstjóra Akureyrar, í kvöldfréttum RÚV í kvöld hafi vakið athygli.

Þar sagði hún að Akureyringar fylgi reglum og þess vegna sé svona lítið um smit norðan heiða. Ásthildur hvatti einnig íbúa höfuðborgarsvæðisins til að halda sig fjarri landsbyggðinni og þeim svæðum þar sem smit eru fá.

Ásthildur hefur vissulega nokkuð til síns máls enda greindust 95 af þeim 99 smitum sem upp komu í gær á höfuðborgarsvæðinu. Hafa sérstakar reglur nú tekið gildi fyrir höfuðborgarsvæðið og munu þær gilda næsta hálfa mánuðinn.

Þá eru 640 einstaklingar nú í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, en á Norðurlandi eystra eru einungis þrír í einangrun.

Ásthildur biðlaði til íbúa á höfuðborgarsvæðinu að fara ekki út á land þar sem lítið er um smit. Hún sagði eðlilegt að grípa til harðari aðgerða á höfuðborgarsvæðinu og hugsanlega hefði mátt gera það fyrr. Ásthildur sagði að Akureyringar fylgi reglum og það sé ástæða fyrir því að faraldurinn hafi ekki leikið Akureyringa verr en hann hefur gert hingað til.

Þessi ummæli Ásthildar hafa farið öfugt ofan í marga eins og sjá má hér að neðan.