Bæjarins beztu hækka verð á pylsum: Sjáðu hvað ein með öllu kostar núna

Þjóðarréttur Íslendinga, pylsur á Bæjarins beztu, hafa hækkað í verði og kostar ein með öllu nú 550 krónur. Fréttablaðið greinir frá þessu en um er að ræða 50 króna hækkun úr 500 krónum.

Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Bæjarins beztu, segir við Fréttablaðið að hækkandi aðfangakostnaður skýri verðhækkunina og þá hafi plastgjald haft sín áhrif.

„Það sem fólk kannski áttar sig ekki á er það að allar vörur hækka til okkar líka. Þetta eru hækkanir frá birgjum sem hafa komið jafnt og þétt í vetur,“ segir hún.

Þetta er í annað sinn á innan við ári sem Bæjarins beztu hækka verð, en í nóvember síðastliðnum var greint frá því að pylsurnar hefðu hækkað úr 470 krónum í 500 krónur.

Frétt Fréttablaðsins.