Bæjar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins með spreng­hlægi­leg mis­tök: „Þá er þetta endan­lega búið hjá mér“

Andri Steinn Hilmars­son, bæjar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins í Kópa­vogi, hefur heldur betur slegið í gegn á Face­book eftir að hann birti ó­vart stöðu­upp­færslu á Face­book sem átti að fara á lokaðan hús­fé­lags­hóp.

„Vatnið fer ekki af í kvöld heldur annað kvöld klukkan 20.30. Það verður síðasta skipti sem ég þarf að taka það af. Wa­ter goes off tomor­row around 20.30. Thank you,“ skrifaði Andri Steinn á Face­book síðuna sína.

Margir undruðu sig á hvað Andri var að meina með þessari stöðu­upp­færslu. Hann er bæjar­full­trúi í Kópa­vogi og veltu ein­hverjir fyrir sér hvort hann ætlaði ein­fald­lega að taka vatnið af Kópa­vogs­bæ.

„Af bænum þá?“ spurði Ólafur Ás­geir í at­huga­semd undir færslunni.

„Gott að vita, fer þà í heitt bað í kvöld,“ skrifaði Frið­dóra Kristins­dóttir.

Jakob Helgi virðist hafa áttað sig á hvað væri í gangi: „Haha þetta er ein leið til láta hús­fé­lagið og al­þjóð vita að þú sért í fram­kvæmdum!.

Andri virðist hafa áttað sig á mis­tökunum þarna og skrifaði:

„Jæja þá er þetta endan­lega búið hjá mér. Fyrst gráu hárin og nú þetta.“

Það er ó­hætt að segja að færslan hafi slegið í gegn og margir skemmt sér yfir þessum mis­tökum hjá bæjar­full­trúanum.