Bæjar­full­trúi sendir á­kall til al­þingis­manna: „Breytum þessu í vetur“

Jón Ingi Hákonar­son, bæjar­full­trúi Við­reisnar í Hafnar­firði, birtir á­kall til al­þingis­manna á Vísi í dag.

„Stað­reynd: Rekstur leik­skóla er ekki lög­bundið hlut­verk sveitar­fé­laga. En það ætti að vera það. Það er undir Al­þingi að lög­festa slíkt og tryggja fjár­mögnun fyrsta skóla­stigsins. Stað­reynd númer tvö: Flestir flokkar á sveitar­stjórnar­stiginu eru sam­mála því að lög­binda eigi rekstur leik­skóla en þing­flokkar þessara sömu flokka hafa lítið ljáð máls á þessu innan veggja Al­þingis,“ skrifar Jón Ingi.

„Stað­reynd númer þrjú: Það mun lítið breytast fyrr en Al­þingi tekur á mál­efnum barna­fjöl­skyldna með heild­stæðum hætti með því að lög­festa leik­skóla sem lög­bundið hlut­verk sveitar­fé­laga, lengja fæðingar­or­lof og þar með auka sveigjan­leika ungs fjöl­skyldu­fólks til þess að sam­eina starfs­feril, fjöl­skyldu­líf og því að koma sér inn á fast­eigna­markaðinn.“

„Hlut­verk hins opin­bera, ríkis og sveitar­fé­laga, er að skapa sam­fé­lags­lega um­gjörð sem gerir fólki og fyrir­tækjum kleift að blómstra. Það er stað­reynd að mikið af ungu og vel menntuðu fólki kýs að stofna heimili og hefja starfs­feril sinn er­lendis þar sem þau þurfa ekki að velja á milli þess að stofna fjöl­skyldu og starfs­ferils. Á meðan ungt fólk þarf að velja á milli starfs­ferils og því að stofna fjöl­skyldu er ís­lenskt sam­fé­lag ekki sam­keppnis­hæft um ungt og efni­legt fólk, það mun leita annað. Ein stærsta á­skorun sam­fé­lagsins er hækkandi meðal­aldur þjóðarinnar. Við þurfum að hlúa betur að ungum barna­fjöl­skyldum, það getur ekki verið ein­göngu á herðum sveitar­fé­laga, hér þarf miklu meiri sam­vinnu ríkis, sveitar­fé­laga og at­vinnu­lífsins,“ skrifar Jón Ingi.

„Á meðan þing­menn segja pass í þessum mála­flokki mun sama ó­fremdar­á­standið halda á­fram. Ég vil bjóða þing­heimi og þá sér í lagi ríkis­stjórninni að vera hluti af lausninni. Flest sveitar­fé­lög hafa ekki fjár­hags­lega burði til þess að koma til móts við þær auknu kröfur í þessum mála­flokki án þess að fá frá ríkinu þar til bæra tekju­stofna. Skulda­staða flestra sveitar­fé­laga er slæm og svig­rúm til tekju­öflunar er lítið. Undan­farið hafa ríkis­stjórnar­flokkarnir verið í meiri­hluta í mörgum sveitar­stjórnum þannig að hæg ættu heima­tökin að vera til að ganga í verkin.

Við erum búin að masa og þrasa um þennan mála­flokk nógu lengi. Breytum þessu í vetur,“ skrifar Jón Ingi að lokum.