Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, segir lög hafa verið brotin þegar valið var hvaða fulltrúar Sjálfstæðisfélags Kópavogs myndu sækja landsfund Sjálfstæðisflokksins sem fram fer um helgina.
„Öllum félögum Sjálfstæðisflokksins er skylt að halda fundi með félagsmönnum sínum til þess að kjósa fulltrúa á landsfund,“ segir Andri í Facebook færslu. Hann segir framkvæmdina vera slíka um allt land.
En í Kópavogi hafi Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður stjórnar Sjálfstæðisfélags Kópavogs og formaður fulltrúaráðs í Kópavogi farið sína eigin leið, að sögn Andra, og það í fullu ósamræmi við skipulagsreglur og lög flokksins.
Skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins segja að kosning landsfundarfulltrúa skuli ávallt fara fram á almennum fulltrúaráðs- eða félagsfundum, og þá skuli kosningu vera getið í fundarboði.
„Sem formaður skilaði ég inn listum þeirra Sjálfstæðismanna í Kópavogi sem ætla á landsfund flokksins næstu helgi. Ég tók saman nöfn þeirra sem óskuðu eftir sæti – það fengu allir sæti sem óskuðu eftir sæti innan tímamarka,“ segir Unnur í færslu sem hún birti í morgun.
„Ég er mjög ósáttur við þá ákvörðun og ekki legið á minni skoðun um að það eigi ekki að vera á hendi örfárra stjórnarmanna í félögum að ráðstafa tæplega 130 fulltrúum á landsfundi,“ segir Andri.
Hann segir kröfuna um að fara að lögum og reglum hafi orðið á endanum til þess að kjörbréfanefnd sá ástæðu til þess að gera athugasemdir við verklagið í Kópavogi við val á landsfundarfulltrúum og bætir við að úr því hafi verið leyst og niðurstaða fengin í málið.
„Ég verð þó að lýsa furðu minni á því að þeir sem skiluðu listum til Valhallar sem á engan hátt stóðust formreglur skuli velja þann kost að vega að starfsmönnum flokksins í stað þess að líta sér nær,“ segir Andri.