Bæjarfulltrúi ósáttur við Kristján Þór: „Hér er um „falsfrétt“ að ræða“

Bæjarfulltrúi er ósáttur við störf Kristjáns Þórs Magnússonar, sveitarstjóra í Norðurþingi, eftir að hann hafi staðfest heiðursborgaratitil sænsku söngkonunnar Molly Sandén.

Söngkonan hefur líklega gert manna mest af því að auka vegsemd Húsavíkur á alþjóðavelli, en hún söng lagið „Húsavík (My Hometown)“ í kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, sem vann Óskarsverðlaun sem besta frumsamda lagið við 93. veitingu verðlaunanna í apríl síðastliðnum. Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, afhenti Sandén heiðursnafnbótina í beinni útsendingu í spjallþættinum Hellenius hörna á sjónvarpsstöðinni TV4 í lok október og var íslenska fánanum flaggað við tilefnið.

Mannlíf hefur eftir Vikublaðinu að Kristján hafi rætt þennan möguleika við formann byggðaráðs en það hafi ekki verið afgreitt með formlegum leiðum.

Haft er eftir Bergi Elíasi Ágústssyni sveitarstjórnarfulltrúa að málið hefði átt að ræða í bæjarstjórn. Hann segir fréttir af málinu því falsfréttir því heiðursnafnbótin hafi hvorki fengið umræðu né verið formlega samþykkt.

„Áður en lengra er haldið, er rétt að það komi fram að Molly ásamt fleirum hafa staðið fyrir frábærri kynningu á mínu indæla samfélagi sem Húsavík er, eftir því hefur verið tekið um víða veröld. kæra Molly, takk fyrir allt sem þú hefur fært Húsavík með þínum hæfileikum, gleði og gæsku. Í mínum huga ert þú einstaklingur ársins á Húsavík, þó svo að heiðursnafnbótin heiðursborgari hafi ekki verið samþykkt,“ er haft eftir honum.

„Hver veit nema að það verði gert síðar og þá af þar til bærum aðilum. Málið hefur því miður hvergi verið rætt í sveitarstjórn né ákvörðun tekin um veitingu titilsins. Því miður er málið þannig vaxið að hér er um „falsfrétt“ að ræða sem sveitarstjóri og formaður byggðarráðs bera alfarið ábyrgð.“

Kristján Þór er nú í veikindaleyfi sem sveitarstjóri.