Bæjarfulltrúi Miðflokksins segir CO­VID-19 bara vera slæma pest – Björn Ingi: „Trump er víða“

Þröstur Jóns­son, odd­viti Mið­flokksins í Múla­þingi, segir að CO­VID-19 sé ekkert annað en slæm pest sem nýtir sér D-víta­mín­skort. Þröstur lét þessi um­mæli falla á Face­book-síðu sinni en Viljinn, frétta­vefur Björns Inga Hrafns­sonar, greindi fyrst frá þessu.

Björn Ingi deildi frétt Viljans á Face­book í gær­kvöldi og sagði við það til­efni: „Trump er víða. Til dæmis á Austur­landi.“

Þröstur er raf­magns­verk­fræðingur að mennt og hefur hann farið nokkuð mikinn í um­ræðu um CO­VID-19 far­aldurinn á Face­book-síðu sinni að undan­förnu. Í færslu sinni sagði hann að heims­byggðin öll hefði í upp­hafi tekið þessu sem al­var­legri far­sótt.

Hann deilir færslu frá sam­tökum sem kallast World Doctors Alli­ance og segir að til að byrja með hafi fáir tekið mark á þeim. „Í októ­ber bauluðun við á þessi sam­tök. Í dag er að koma betur og betur í ljós að þau fara með rétt mál. Fjöldi radda um allan heim taka undir það.“

Það skal strax tekið fram að um­rædd sam­tök, World Doctors Alli­ance, eru al­ræmd fyrir að dreifa fals­fréttum um far­aldurinn eins og sést í þessari stað­reynda­vakt sem frétta­stofa AFP hefur sett upp.

„Þetta er slæm pest sem nýtir sér D-víta­mín skort [sjá rann­sókna­niður­stöður frá Singa­púr] Lyf svo sem I­ver­mectin og jafn­vel Hydr­oxicl­oricen gera pestina að engu. Gallinn er bara sá að stjórn­völd/World Econo­my Forum og WHO halda þessum lyfjum frá okkur til að við­halda skelfingu og eyði­leggja sam­fé­lög okkar, svo fram­kvæma megi hið ílla Global Reset [sjá vef WEF],“ segir Þröstur.

Hann gagn­rýnir einnig að heims­byggðin sé ekki frædd um á­hrif D-víta­mín­skorts og segir að Lyfja­stofnun hafi verið með hræðslu­á­róður í gangi gegn lyfinu I­ver­mectin. Lyfja­stofnun hefur varað við notkun á lyfinu þar sem niður­staða um mat á á­vinningi og á­hættu liggur ekki fyrir.

„Nauð­syn­legt er að endan­legar niður­stöður úr klínískum rann­sóknum liggi fyrir áður en hægt er að full­yrða um öryggi lyfsins og verkun þess sem með­ferð við eða for­vörn gegn CO­VID-19,“ segir á vef Lyfja­stofnunar. Þröstur gefur lítið fyrir þetta og kallar veiruna meðal annars „Kínavírusinn“. „Þetta er ekki pandemic. Þetta er satanic planademic,“ segir hann.