Bæði inn­lendir og er­lendir fjár­festar hafa á­huga á Ís­lands­banka

Bæði inn­lendir og er­lendir, hæfir fjár­festar sýndu út­boði á sölu ríkisins á hlut sínum í Ís­lands­banka á­huga. Þetta kemur fram í til­kynningu frá Ís­lands­banka um niður­stöðu sölu­ferlis á hlut ríkis­sjóðs í Ís­lands­banka.

Eins og fram hefur komið heimilaði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, Banka­sýslu ríkisins að selja hluti ríkis­sjóðs í Ís­lands­banka í nokkrum skrefum.

Í til­kynningunni segir að veru­leg um­fram eftir­spurn hafi verið eftir hlut ríkisins í Ís­lands­banka sem aug­lýstur var til sölu síð­degis í gær. Það hafi veirð hæfir inn­lendir og er­lendir fjár­festar, sem hafi haft mikinn á­huga á hlutnum.

Þar kemur fram að seld hafi verið 22,5 prósent af úti­standandi hluta­fé Ís­lands­banka sem jafn­gildir 450 milljón hlutum í bankanum. Sölu­verð var 117 krónur á hlut og nam sölu­virði hlutarins því 52,65 milljörðum króna, en upp­gjör við­skiptanna fer fram 28. mars.

Þá segir í til­kynningunni að Ríkis­sjóður Ís­lands muni eiga 42,5 prósent af úti­standandi hlutum í Ís­lands­banka að við­skiptunum loknum. Á síðasta ári seldi ríkið um 35 prósenta hlut sinn í Ís­lands­banka, fyrir 55 milljarða króna. Ríkið átti eftir það enn um 65 prósenta hlut í bankanum.