„Báðum þessum "verka­lýðs­leið­togum" til skammar“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hjólar í Frið­rik Jóns­son, for­mann BHM í Face­book færslu. Til­efnið er Face­book færsla hins síðar­nefnda.

Þar segir Frið­rik að yfir­vofandi hóp­upp­sögn allra starfs­manna Eflingar vekji hjá sér óhug. „Hér á greini­lega að losa sig við „ó­æski­lega starfs­menn“. Vissu­lega er það svo að ef starfs­menn t.d. í fé­lags­pólitísku um­hverfi vinna bein­línis gegn lýð­ræðis­lega kjörinni for­ystu að þá verður eitt­hvað undan að láta. Hér er hins vegar beitt öðrum rökum sem hver um sig vekja upp enn frekari spurningar,“ segir Frið­rik.

Sjá einnig: For­maður BHM segir á­kvörðun Sól­veigar vekja óhug: „Fróð­legt að sjá hvort fram komi form­leg til­kynning um hóp­upp­sögn“

Sól­veig segir hann ráðast að sér með að­dróttunum um að annar­legur til­gangur ráði för í á­kvörðun stjórnar um fyrir­hugaðar skipu­lags­breytingar á starf­semi skrif­stofu Eflingar.

„Hann líkt og Drífa Snæ­dal, for­seti ASÍ, vill leggja sitt af mörkum til að grafa undan lýð­ræðis­lega kjörinni for­ystu Eflingar og þeim á­kvörðunum sem teknar eru á vett­vangi stjórnar fé­lagsins,“ skrifar Sól­veig.

„Hann, líkt og Drífa, ber enga virðingu fyrir á­kvörðunar­rétti verka og lág­laun­fólks yfir eigin fé­lagi, hvað þá getu okkar til að taka mikil­vægar á­kvarðanir byggðar á mál­efna­legum for­sendum um það hvað best er fyrir fé­lagið okkar.

Hann, líkt og hún, getur ekki viður­kennt að Efling er eign fé­lags­fólks, sem kýs (nú er sannar­lega virkt lýð­ræði í fé­laginu, sem var undir stjórn sömu klíkunnar í 18 ár áður en ég og B-listi sigruðum vorið 2018 með yfir­burðum í fyrstu kosningum fé­lagsins frá því að það var stofnað) úr röðum fé­laga sinna þau sem stýra skulu fé­laginu og leiða þar með á­kvarðana­töku um stefnu og stjórn. Hann á­lítur sig svo yfir mig og fé­laga mína hafinn að hann hljóti að geta lagt mat á hug­myndir okkar, stefnu og sýn, án þess að hann hafi þó nokkra einustu inn­sýn í málið. Stétta­hrokinn er yfir­gengi­legur. Báðum þessum "verka­lýðs­leið­togum" til skammar.“