Tónlistarmaðurinn Axel Einarsson lést þann 5. september síðastliðinn á 73. aldursári. Greint er frá andláti Axels í Morgunblaðinu í dag.
Axel var í fjölda hljómsveita þar sem hann spilaði meðal annars á gítar. Þá þótti Axel einnig snjall lagahöfundur en hans þekktasta lag er án efa lagið Hjálpum þeim sem kom út árið 1985.
Axel fæddist 27. október 1947 og lærði húsasmíði. Tónlistin átti þó hug hans allan og var hann áberandi í íslensku tónlistarlífi á sjöunda og áttunda áratug liðinnar aldar. Hann var í hljómsveitunum Tilveru, Icecross og Deildarbungubræðrum.
Síðustu æviár sín bjó Axel í Svíþjóð þar sem hann vann að tónlist. Hann lætur eftir sig tvær dætur og fósturson, sex barnabörn og þrjú langafabörn.