Áfengissala í Vínbúðunum var 8,6 prósent meiri í síðustu viku en á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Alls seldust 416 þúsund lítrar af áfengi í síðustu viku. Á sama tíma í fyrra seldust 383 þúsund lítrar. Aukningin var helst á fimmtudag og föstudag, en á sama tíma var mikið að gera í matvöruverslunum.
Hefur Vínbúðin beðið viðskiptavini sína að koma á rólegri tímum, þá helst fyrri hluta dags og fyrri hluta vikunnar.