Mikil aukning var á sölu flugelda á árinu sem nú er liðið en Þór Þorsteinsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, greinir frá því að salan hafi verið meiri en árin á undan hjá félaginu.
Í samtali við Vísi vísaði Þór til þess að fleiri séu nú á landinu og það gæti verið möguleg skýring á aukningunni. „Örugglega líka það að fólk ætlaði virkilega að kveðja þetta ár og sjá til þess að það kæmi ekki aftur, sprengja það í burtu,“ sagði Þór í samtali við Vísi.
Þá sagði Þór að það væri ánægjulegt að sjá aukningu í flugeldasölu en hún hafi verið niður á við síðastliðin ár. Enn er verið að selja flugelda og sagði Þór að nóg væri til fyrir þrettándann.
„Stuðningur þjóðarinnar við okkar starf er alltaf mjög mikill og við erum ákaflega þakklát fyrir það. Ég held að árið í ár sé ekkert sérstaklega að valda því en hann er stöðugur og á meðan við stöndum okkur og stöndum undir merkjum þá styður þjóðin við okkur.“