Augnablikið þegar Illugi missti allt álit á Brynjari Níelssyni

Illugi Jökulsson, rithöfundur og þjóðfélagsrýnir, hefur ekki ýkja mikið álit á Brynjari Níelssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Rifjar hann upp augnablikið þegar hann missti í raun allt álit á honum.

Illugi gerir orð Brynjars í útvarpsþættinum Harmageddon í gær að umtalsefni og deilir frétt Stundarinnar um málið. Í þættinum sagði hann blaðamenn sjálfhverfa og ótrúlega mikla aumingja.

Í þættinum voru nýjustu vendingar í Samherjamálinu viðraðar, en Kjarninn og Stundin hafa afhjúpað hina svokölluðu skæruliðadeild síðustu daga. Kom hann Samherja – og skæruliðadeildinni – meðal annars til varnar og sagði um réttmæta vörn að ræða þegar „djöflast“ væri á fyrirtækinu alla daga.

Sjá einnig: Brynjar rífur í sig Sam­herja­upp­ljóstrun: „Ó­trú­lega miklir aumingjar“

„Stóra málið og sið­leysið í þessu er að vera birta ein­hver gögn, stolin gögn um skoðanir fólks sín á milli,“ segir Brynjar og vísar í uppljóstranir Kjarnans og Stundarinnar.

Illugi rifjar upp á Facebook-síðu sinni að hann hafi fyrir allnokkrum árum verið viðstaddur fund í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem Brynjar Níelsson flutti ávarp, en svo vildi til að fundurinn var um Guðmundar- og Geirfinnsmál.

„Þar sagði hann viðstöddum — fullur af yfirlæti — að enginn þar inni vissi nálægt því eins mikið um málið og hann. Svo vildi hins vegar til að áhorfendur einmitt þarna voru nánast upp á hvern mann sérstakir áhugamenn um þessi mál, fólk sem hafði fórnað tíma og orku af einskærri réttlætiskennd til að kynna sér málið í raun og veru, lesa heilu skjalabunkana, dómana, óteljandi blaðagreinar, pistla, viðtöl og bækur,“ segir Illugi sem endar skrif sín á þessum orðum:

„Síðan hef ég aldrei fundið hjá mér hvöt til að taka minnsta mark á þeim innantóma belgingi sem frá þessum manni kemur.“