Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins auglýsir í dag eftir því að ráða þjónustulundaðan bílstjóra til að annast akstur fyrir ráðherra hjá Stjórnarráði Íslands. Ráðherrabílstjórar hafa það nokkuð gott því DV greindi frá því árið 2018 að bílstjórarnir væru í einhverjum tilfellum með hærri laun en þingmenn.
Eins og gefur að skilja er meginverkefni ráðherrabílstjóra akstur með ráðherra og önnur tengd verkefni sem hópstjóri ráðherrabílstjóra felur bílstjórunum. Vinnutími er sagður breytilegur og því er nauðsynlegt að viðkomandi hafi svigrúm til að vinna að kvöldi og um helgar þegar þess gerist þörf.
Þá er tekið fram í auglýsingunni, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, að ráðherrabílstjórum sé skylt að sækja tiltekin námskeið sem tengjast starfinu. Þá þurfa umsækjendur að uppfylla ákveðnar þrekkröfur sem gerðar eru til starfsins áður en til ráðningar kemur. Ekki liggur fyrir hverjar þrekkröfurnar eru en samkvæmt þessu þurfa bílstjórarnir að vera í þokkalega góðu formi.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2022.
Í frétt DV árið 2018 kom fram að mánaðarleg laun tveggja ráðherrabílstjóra, það er bílstjóra dómsmálaráðherra og bílstjóra samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefðu numið allt að 937 þúsund krónum á mánuði, án launatengdra gjalda, árið 2017. Voru launin nokkuð breytileg eftir tímabilum. Þannig sveifluðust þau frá 721 þúsund krónum á mánuði, án launatengdra gjalda, upp í 937 þúsund krónur. Eru launin alla jafna hærri í kringum kosningabaráttuna þegar ráðherrar eru á fleygiferð. Tekið skal fram að launin sem fjallað er um hér að ofan eru frá 2017 en síðan þá hafa laun á almennum vinnumarkaði hækkað þó nokkuð.
Í fréttinni var tekið fram að fullyrða mætti að ráðherrabílstjórarnir hafi verið með hærri mánaðarlaun en alþingismenn í nokkrum tilvikum að teknu tilliti til launatengdra gjalda. Á þeim tíma voru laun alþingismanna rétt rúmlega 1,1 milljón á mánuði.