Ný auglýsing fyrir Sunnudagsskóla Þjóðkirkjunnar hefur vakið mikla athygli og sterk viðbrögð fólks, jafnvel mikla reiði. Á mynd í auglýsingunni er Jesú í kjól, með skegg, varalit og brjóst.
Pétur Georg Markan, guðfræðingur og samskiptastjóri þjóðkirkjunnar segir í þættinum 21 í kvöld umræðuna góða og þegar fólk hefur skoðanaskipti um Jesú og guðfræði þá sé það af hinu góða. Hann segir auglýsinguna ekki hafa verið gerða í því skyni að auka vinsældir kirkjunnar.
„Jesú lítur svona út í þessu kynningarefni af því að hann er birtingarmynd samfélagsins eins og það er og við erum konur og við erum karlar og við erum alls konar þannig að það er svona uppleggið með útlitið á Jesú“, segir Pétur.
Hann segir að greina verði á milli tvenns: Annars vegar að Jesú var karl í sagnfræðinni og biblíunni og hins vegar þess boðaskapar sem hann flutti.
„Myndin vekur alls konar viðbrögð, við höfum fengið dásamleg viðbrögð frá foreldrum sem til dæmis eiga transbörn sem segja okkur að það sé dásamlegt núna að börnin eigi núna hlutdeild í þessum Jesú eða Kristi sem að er í þessari auglýsingu“
„En auðvitað er það þannig að kirkjan er breiðfylking og tvö þúsund ára stofnun og það er ekkert óeðlilegt heldur að svona myndbirting skapi alls konar umræður og menn bara takast á um það, það er bara að mörgu leyti af hinu góða“, segir Pétur.
En er þetta tilraun til að auka vinsældir Þjóðkirkjunnar?
„Nei, ég held að það komi að sjálfu sér þegar kirkjan er í betra sambandi við þjóðina. Ég held að hlutverk kirkjunnar hins vegar á hverjum tíma að kalla eftir eða reyna finna púlsinn í samfélaginu“, segir Pétur.