Aug­lýsing Sveins vakti mikla at­hygli: „Sjald­gæft að maður tárist við að lesa leigu­aug­lýsingar“

Ó­hætt er að segja að aug­lýsing Sveins Rúnars Sigurðs­sonar, læknis og laga­höfundar, hafi vakið mikla at­hygli um helgina.

Um var að ræða aug­lýsingu vegna í­búðar sem Sveinn og eigin­kona hans aug­lýstu til leigu í Face­book-hópnum Leiga.

Um var að ræða gull­fal­lega þriggja her­bergja íbúð á Lang­holts­veginum í hjarta Reykja­víkur. Það sem vakti einna mesta at­hygli var að í aug­lýsingunni kom fram að leigj­endur fá 50% af­slátt af leigunni í desember ár hvert. Það eina sem leigj­endur þurfa að gera í staðinn er að ganga vel um.

„Við erum ung lækna­hjón sem eitt sinn voru á leigu­markaði og sáum að það væri hægt að gera mikið betur,“ sagði Sveinn í aug­lýsingunni en leigu­verð var 265 þúsund krónur. Allur kostnaður var inni­falinn í verðinu, þar með talið há­hraða inter­net og hús­gögn.

„Við setjum metnað í leigu­í­búðirnar okkar og inn­réttum þær eins og við værum sjálf að flytja inn á drauma­heimilið okkar,“ sagði hann.

Margar at­huga­semdir voru skrifaðar við færsluna og sáu margir á­stæðu til að hrósa Sveini og eigin­konu hans. „Ég bara get ekki annað enn hrósað ykkur fyrir sann­gjarna leigu og að veita af­slátt í desember. Það mættu sko margir leigu­salar taka ykkur til fyrir­myndar,“ sagði ungur maður í at­huga­semdum á meðan kona bættið við:

„Sjald­gæft að maður tárist við að lesa leigu­aug­lýsingar.“

Sveinn birti svo aðra færslu í gær þar sem hann þakkaði fyrir þau góðu við­brögð sem aug­lýsingin fékk. „Fengum yfir 80 fyrir­spurnir og verður eignin að fal­legu heimili fyrir litla fjöl­skyldu von bráðar,“ sagði hann.

Hann bætti svo við að þau hjónin fjár­festi ein­göngu í grónum og grænum hverfum í nánd við alla þjónustu og mið­borg Reykja­víkur. Óskaði Sveinn eftir á­huga­sömum leigu­tökum sem gætu haft á­huga á næstu eignum sem fara í leigu í desember eða janúar.