Nýleg auglýsingaherferð 66°Norður hefur vakið upp hörð viðbrögð í Facebook hópnum Bakland ferðaþjónustunnar en þar deilir Hlynur Jón Michelsen skjáskoti af ljósmynd sem sýnir bak við tjöldin við gerð auglýsingarinnar.
Hvað finnst fólki um svona auglýsingu? Spyr Hlynur.
Örvar már Kristinsson tekur fyrst til máls og segist ekkert skilja í því að fyrirtæki eins og 66 sé að hvetja fólk til að standa úti á miðjum vegum í slæmu skyggni „að taka selfie“
„Hún er slæm - það hafa orðið slys, banaslys við hliðstæðar aðstæður. Sjálf hef eg keyrt inn í hóp af fólki í norðurljósaferð og má bara þakka fyrir að keyra ekki á neinn, en fá skítahreyting frá leiðsögumanni eða rútubílstjóra - en sem betur fer eru nokkur ár orðin síðan og rútuhópanna er gætt miklu betur en var að mér sýnist,“ skrifar Anna Soffía Óskarsdóttir.
Fannar Hjálmarsson greinir síða frá því að hann hafi sjálfur komið fyrir blindbeygju í brekku í hálku þar sem var mikið af flutningabílum og ferðamenn voru búnir að leggja hægra megin á veginum og voru að labba yfir. „Litlu mátti muna að þarna gæti orðið slys,“ segir Fannar.
Jóna Fanney Svavarsdóttir tekur síðan undir með honum og segir a það sé réttmæt að gagnrýna herferðina.
„Það hafa orðið banaslys við álíka aðstæður og það á að letja fólk til að gera svona... ekki hvetja, það er til nóg af fallegri náttúru til þess að mynda þessar úlpur,“ skrifar Jóna Fanney.