„Það er verið að sturta mold beint á hreiðrin,“ segir Auður Anna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, í Fréttablaðinu í dag.
Í frétt blaðsins kemur fram að Landvernd hafi farið fram á að Garðabær stöðvi undir eins moldarflutninga á norðanverðu Álftanesi. Þar standa nú yfir framkvæmdir við nýjan golfvöll en svo vill til að framkvæmdirnar eru gerðar í miðju fuglavarpi sem stendur nú yfir.
Auður Anna segir að beinlínis sé verið að sturta mold beint á hreiðrin.
„Fuglarnir vappa þarna um og leita að eggjum sínum og ungum,“ segir Auður en Landvernd hefur óskað eftir því að Garðabær sýni fram á framkvæmdaleyfi. Ef skýringar berist ekki muni samtökin leita lögformlegra leiða til að stöðva umræddar framkvæmdir.